Hoppa yfir valmynd
30. júlí 2020

Stuðningsfulltrúar á sérnámsbraut

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir eftir stuðningsfulltrúum á sérnámsbraut


Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða 2 stuðningsfulltrúa á sérnámsbraut. Um er að ræða tvær 50-60% stöður.

Starfið felst í stuðningi og aðstoð við nemendur á sérnámsbraut. Leitað er að starfsmönnum sem hafa góða samskiptahæfileika og hafa áhuga á að vinna með ungu fólki.  Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi og hafi góða tölvufærni.


Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.


Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ kennir sig við auðlindir og umhverfi í víðum skilningi og leggur áherslu á að vera í góðum tengslum við umhverfi sitt, bæði hvað varðar listir og menningu, íþróttir og lýðheilsu og annað það sem einkennir mannlíf í Mosfellsbæ. Skólinn er framhaldsskóli með áfangasniði þar sem í boði eru stúdentsbrautir, framhaldsskólabrautir og sérnámsbraut. Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og leiðsagnarnám.

Ráðið verður í stöðurnar sem fyrst. 

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast Guðbjörgu Aðalbergsdóttur skólameistara í netfangið [email protected] eða Guðrúnu Guðjónsdóttur aðstoðarskólameistara í netfangið [email protected]. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Háholti 35, 270 Mosfellsbær.
Vakin er athygli umsækjenda á að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en af ráðningu getur orðið.


Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 11. ágúst. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari í netfangi [email protected] eða í síma 864-9729 og aðstoðarskólameistari í netfangi [email protected] eða í síma 845-8829. Á vef skólans www.fmos.is má einnig finna ýmsar upplýsingar um skólann.


Skólameistari

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta