Hoppa yfir valmynd
31. júlí 2020

Hjúkrunarfræðingur

Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Glerártorgi Akureyri

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa við Blóðbankann Glerártorgi. Starfið er fjölbreytt og krefjandi. Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga og frábært starfsumhverfi.

Blóðbankinn er einn sinnar tegundar á landinu og sinnir m.a. söfnun blóðs, blóðhlutavinnslu, geymslu blóðhluta, blóðflokkunum, veiruskimun og afgreiðslu blóðhluta. Í Blóðbanka starfa um 55 manns, líffræðingar, lífeindafræðingar, hjúkrunarfræðingar, læknar og skrifstofumenn. Unnið er samkvæmt vottuðu gæðakerfi og er markmið allra starfsmanna að viðhalda gæðakerfinu og vinna í samræmi við hlutverk og stefnu Blóðbankans.

Helstu verkefni og ábyrgð

» Móttaka blóðgjafa, mat á hæfi þeirra og blóðtaka
» Öflun blóðgjafa og markaðsstarf
» Skráning upplýsinga og vinna í gæðakerfi

Hæfnikröfur

» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Fagmennska, nákvæmni og vilji til að tileinka sér nýjungar
» Gott viðmót, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
» Góð tölvukunnátta
» Góð íslenskukunnátta og góður skilningur á ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Starfið er laust frá 1. september 2020. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.

Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2020

Nánari upplýsingar veitir

Ína Björg Hjálmarsdóttir - [email protected] - 824 5287
Vigdís Jóhannsdóttir - [email protected] - 824 0291

 

Landspítali
Blóðbankinn, blóðsöfnun
Snorrabraut 60
105 Reykjavík

 

Smellið hér til að sækja um starf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum