Hoppa yfir valmynd
11. september 2020

Fagstjóri lækninga Heilsugæslan Hvammi

Fagstjóri lækninga Heilsugæslan Hvammi


Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar ótímabundið starf fagstjóra lækninga við Heilsugæsluna Hvamm. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, skipulagshæfni og samskiptahæfileika. Starfshlutfall er 100% frá og með 1. október nk. eða eftir nánara samkomulagi. 

Heilsugæslan er fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem leitast er við að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu fagstétta og víðtæku þverfaglegu samstarfi. Gildi HH, virðing, samvinna, fagmennska eru lýsandi fyrir áherslur í þjónustu og öllu innra starfi.


Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulag, verkstjórn og samhæfing innan fagsviðs með svæðisstjóra, í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
- Er svæðisstjóra innan handar við daglegan rekstur stöðvar og er staðgengill hans
- Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum á starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga stöðvar
- Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun klínískra leiðbeininga
- Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
- Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi
- Hefur umsjón með sérnámslæknum stöðvar, veitir fræðslu til nema, nýliða og starfsmanna fagsviðs í samvinnu við aðra starfsmenn stöðvar 
- Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir klínísku starfi samhliða


Hæfnikröfur
- Sérfræðingur í heimilislækningum
- Reynsla af starfi í heilsugæslu 
- Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar æskileg
- Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
- Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
- Íslenskukunnátta nauðsynleg


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Stéttarfélag er Læknafélag Íslands.

Allar umsóknir verða sendar til stöðunefndar hjá Landlæknisembættinu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. 

Jafnframt skal fylla út eyðublaðið €"Umsókn um læknisstöðu"€œ og setja það í viðhengi. Umsóknareyðublaðið má nálgast á vef Embættis landlæknis (www.landlaeknir.is) undir útgefið efni. 

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. 


Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.09.2020


Nánari upplýsingar veitir
Rut Gunnarsdóttir - [email protected] - 513 5850
Sigríður Dóra Magnúsdóttir - [email protected] - 513-5971



Hvammi lækningar
Hagasmára 5
201 Kópavogur


Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta