Heilbrigðisstofnun Norðurlands Fjallabyggð, sjúkraliði á heilsugæslu.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Fjallabyggð, sjúkraliði á heilsugæslu.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir sjúkraliða til starfa á heilsugæslunni Siglufirði.
Vinnutími frá 8-12 virka daga auk helgarvinnu aðra hverja helgi.
Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vitjanir í heimahús.
- Vinna með skjólstæðingum og aðstandendum þeirra
- Vinna í teymi sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga
- Önnur verkefni sem tilheyra heilsugæslu
Hæfnikröfur
- Fullgilt sjúkraliðapróf
- Bílpróf er skilyrði
- Reynsla af umönnun aldraðra er kostur
- Reynsla af starfi í heimahjúkrun er kostur
- Frumkvæði samviskusemi og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni, sveigjanleiki og góð færni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði.
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2020
Nánari upplýsingar veitir
Anna Sigurbjörg Gilsdóttir - [email protected] - 460 2172
Fjallabyggð Heilsugæsla
Hvanneyrarbraut 37
580 Siglufjörður
Smellið hér til að sækja um starf