Hoppa yfir valmynd
15. september 2020

Hjúkrunarfræðingur á dagdeild geðendurhæfingar


Hjúkrunarfræðingur á dagdeild geðendurhæfingar


Við leitum eftir öflugum og sjálfstæðum hjúkrunarfræðingi í starf málastjóra í dagdeildarteymi geðendurhæfingar á Kleppi. Í boði er spennandi starf í þverfaglegu teymi með mikla möguleika á þróun í starfi. Starfshlutfall er 80-100% og eingöngu dagvinna. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Um er að ræða þverfaglegt dagdeildarteymi sem er meðferðarúrræði innan geðendurhæfingar á Kleppi. Dagdeildarteymið sinnir einstaklingum með ýmsan geðvanda s.s. kvíða og lyndisraskanir, áfallastreitu og persónuleikaraskanir. Þjónustan sem veitt er í teyminu er sérhæfð gagnreynd dagdeildarmeðferð og tekur mið af þörfum hvers og eins. Teymið vinnur í samstarfi við legudeild geðendurhæfingar.

Dagdeild geðendurhæfingar er í mikilli uppbyggingu og gefst því tækifæri til að taka þátt í framtíðarþróun þjónustunnar. Sérstök áhersla er lögð á einstaklings- og batamiðaða þjónustu sem og virkt samstarf við aðstandendur. Næsti yfirmaður er deildarstjóri dagdeild geðendurhæfingar.

Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala (sjá myndskeið undir frekari upplýsingar).


Helstu verkefni og ábyrgð
» Málastjórn fyrir þjónustuþega þ.e. yfirumsjón meðferðar í samstarfi við þverfaglegt teymi dagdeildar
» Virk þátttaka í þverfaglegu teymisstarfi
» Virk þátttaka í framþróun og uppbyggingu þjónustunnar
» Ýmis önnur verkefni s.s. vaktstjórn og fræðslu fyrir þjónustuþega og starfsfólk. 


Hæfnikröfur
» Framúrskarandi samskiptahæfileikar og sveigjanleiki
» Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi sem og einlægur áhugi á geðhjúkrun
» Reynsla af og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
» Skipulagshæfni og færni til að hafa góða yfirsýn yfir málefni og meðferð þjónustuþega
» Jákvætt viðhorf
» Stundvísi og áreiðanleiki
» Góð almenn tölvukunnátta og færni í mæltu og rituðu máli
» Íslenskt hjúkrunarleyfi


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.


Handleiðsla og fræðsla á starfsþróunarári (myndskeið)


Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.09.2020


Nánari upplýsingar veitir
Díana Liz Franksdóttir - [email protected]s - 824 5779
Ragnheiður H. Eiríksd. Bjarman - [email protected] - 543 4213



Landspítali
Geðendurhæfingardeild
v/Kleppsgarð 3
104 Reykjavík



Smellið hér til að sækja um starf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum