Sérfræðilæknir í innkirtlalækningum
Sérfræðilæknir í innkirtlalækningum
Leitum eftir öflugum sérfræðilækni til starfa á innkirtladeild á lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítala. Starfshlutfall er samkomulag og starfið er laust frá 15. október 2020 eða eftir samkomulagi.
Við innkirtla- og efnaskiptalækningar á Landspítala starfar öflugur hópur sérfræðilækna í samvinnu við aðra faghópa að málefnum fólks með innkirtlasjúkdóma. Teymið telur í heild um 20 einstaklinga sem starfa saman við nýja göngudeild og rannsóknareiningu á Landspítala. Læknar taka einnig þátt í almennum lyflækningum á Landspítala og göngudeild á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Önnur verkefni eru handleiðsla námslækna ásamt kennslu og ráðgjöf innan og utan spítalans.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Vinna á legu- og göngudeildum innkirtlalækninga
» Vinna við ráðgjöf innkirtlalækninga
» Þátttaka í vaktþjónustu innkirtlalækninga
» Þátttaka í viðfangsefnum almennra lyflækninga
» Handleiðsla námslækna
» Þátttaka í kennslu og rannsóknarstarfi
Hæfnikröfur
» Breið þekking og reynsla í almennum lyflækningum
» Breið þekking og reynsla í innkirtlasjúkdómum
» Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
» Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum með innkirtlalækningar sem undirsérgrein
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í kjarasamningi lækna og ríkisins 2015. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
» Fyrri störf, menntun og hæfni
» Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
» Vottað afrit af námsgögnum og starfsleyfum
» Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
» Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
» Yfirlit yfir birtar vísindagreinar (eða í ritrýni) sem umsækjandi er fyrsti höfundur að
» Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis, sjá hlekk á umsókn hér fyrir neðan
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Ath. fylla skal einnig út umsókn um læknisstöðu hér hjá Embætti landlæknis
Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2020
Nánari upplýsingar veitir
Rafn Benediktsson - [email protected] - 824 5929
Landspítali
Innkirtla- og efnaskiptasjúkdómalækningar
Fossvogi
108 Reykjavík
Smellið hér til að sækja um starf