Hoppa yfir valmynd
16. september 2020

Sérfræðingur í fjármálum

Sérfræðingur í fjármálum


Þjóðskrá Íslands leitar að metnaðarfullum, snjöllum og skilvirkum sérfræðingi í fjármálateymi á skrifstofu forstjóra. Um er að ræða fjölbreytt starf er lítur að fjármálum og rekstri stofnunarinnar. Starfið byggir á miklum samskiptum við stjórnendur og felst meðal annars í aðkomu að fjárhagslegum rekstri, áætlunargerð og eftirfylgni með áætlunum ásamt þátttöku í nýsköpun á sviði fjármála. Viðkomandi gefst tækifæri til að þróa og innleiða nýja ferla og bæta vinnulag. Sérfræðingur vinnur náið með fjármálastjóra. 

Helstu verkefni og ábyrgð
Afstemmingar og uppgjör á bókhaldi
Áætlanagerð og skýrslugerð um fjármál og rekstur
Frávikagreining og eftirfylgni með átætlunum
Fjárhagslegar greiningar og gerð kostnaðarmats
Úrvinnsla tölulegra upplýsinga fyrir stjórnendur
Innleiðing nýrra verkefna og verklags
Eftirlit með framkvæmd samninga
Eftirfylgni með verkbókhaldi


Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun í viðskiptafræði, rekstrarhagfræði eða sambærileg menntun er skilyrði
Að lágmarki 3-5 ára reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Þekking og reynsla af uppgjöri og bókhaldi er nauðsynleg
Reynsla af fjármálum og áætlunargerð er nauðsynleg
Þekking og reynsla af opinberum rekstri og lögum um opinber fjármál er kostur
Þekking og reynsla af bókhaldskerfi ríkisins er kostur 
Góð tölvufærni og þekking, s.s. í Excel er skilyrði 
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum 
Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
Hæfni til að starfa sjálfstætt og í hóp 
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku sem og í miðlun tölfræðilegra upplýsinga

Um er að ræða fullt starf og laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Þjóðskrá Íslands hefur tvær starfsstöðvar, á Akureyri og í Reykjavík, og getur starfið verið staðsett á báðum stöðum. Fólk af öllum kynum er hvatt til að sækja um starfið.


Umsóknarfrestur er til og með 27. september 2020. Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf. Umsóknir óskast sendar á Alfred.is. Athygli er vakin á því, að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Bjarkey Rut Gunnlaugsdóttir, fjármálastjóri [email protected] 515-5300. 


Hlutverk Þjóðskrár Íslands er að greiða götu fólks og fyrirtækja í samfélaginu og gæta upplýsinga um réttindi þeirra og eignir. Við sinnum því með því að safna, varðveita og miðla upplýsingum um fólk, mannvirki og landeignir. Innan starfsviðs Þjóðskrár Íslands er rekstur fasteignaskrár og þjóðskrár, útgefið fasteignamat og brunabótamat og umsjón með útgáfu vegabréfa.


Við leggjum ríka áherslu á jákvæð samskipti og góða samvinnu sem er undirstaða góðrar þjónustu. Við teljum eftirsóknarvert að fá til liðs við okkur þá sem vilja starfa í anda gilda okkar um virðingu, sköpunargleði og áreiðanleika. 
Við kunnum vel að meta frumkvæði, nákvæmni og hraða í vinnubrögðum og nýtum aðferðir straumlínustjórnunar til að gera betur í dag en í gær. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta