Hoppa yfir valmynd
16. september 2020 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tengjum ríkið – ráðstefna um stafræna framtíð hins opinbera

Ráðstefna um stafræna framtíðarsýn hins opinbera og nýjungar sem unnið er að til að stórefla stafræna þjónustu verða kynntar á ráðstefnu Stafræns Íslands „Tengjum ríkið“ fimmtudaginn 24. september næstkomandi. Meðal þess sem fjallað verður um er nýr og endurbættur vefur Ísland.is,  sem er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi þar sem hægt er að nálgast margvíslega þjónustu í einni gátt.

Á nýjum vef Ísland.is sem senn verður aðgengilegur felast fjölmörg tækifæri fyrir opinberar stofnanir til að bæta þjónustu sína, sem kynnt verða á ráðstefnunni. Þar munu samstarfsaðilar Stafræns Íslands í stofnunum og ráðuneytum fara yfir reynsluna af þeim verkefnum sem eru í vinnslu og þeim sem þegar er lokið. Þá munu hugbúnaðarfyrirtæki sem eru í samstarfi við Stafrænt Ísland fjalla um öryggismál, rekstrarumhverfi, hönnunarkerfi og gagnamál.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, opnar ráðstefnuna og og Andri Heiðar framkvæmdastjóri Stafræns Íslands fer yfir framtíðarsýn Stafræns Íslands. Helsti fyrirlesari ráðstefnunnar er David Eaves frá Harvard háskóla í Bandaríkjunum, sem sérhæfir sig í stafrænni vegferð ríkja en hann hyggst fjalla um sóknarfærin á Íslandi í erindi sínu Digital Transformation - Global Trends and Iceland’s Potential. Að auki verða á ráðstefnunni um 15 örfyrirlestrar frá stofnunum og öðrum samstarfsaðilum.

Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og hún á erindi til allra sem hafa áhuga á stafrænni framtíð og opinberri þjónustu. Ráðstefnunni verður streymt beint á Ísland.is en vegna sóttvarna verða fá sæti í boði í sal.

Mikilvægt er að þátttakendur í ráðstefnunni skrái sig svo hægt sé að tryggja sæti í sal eða að upplýsingar berist um streymi ráðstefnunnar.

  • Tengjum ríkið - ráðstefna um stafræna framtíð hins opinbera
  • Skráning á ráðstefnuna 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum