Hoppa yfir valmynd
7. október 2020 Dómsmálaráðuneytið

Sautján sóttu um embætti dómenda við Endurupptökudóm

Þann 1. desember n.k. tekur Endurupptökudómur til starfa. Endurupptökudómur er sérdómstóll sem hefur það hlutverk að skera úr um hvort heimila skuli endurupptöku dómsmála sem dæmd hafa verið í héraði, Landsrétti eða Hæstarétti. Dómsmálaráðherra skipar fimm dómendur í Endurupptökudóm, þar af þrjá, ásamt jafnmörgum varamönnum, tilnefnda af hverju hinna þriggja dómstiga. Í embætti tveggja dómenda, og jafnmargra til vara, er skipað að undangenginni auglýsingu og umsögn dómnefndar um hæfni umsækjenda um embætti dómara.

Þann 18. september 2020 auglýsti dómsmálaráðuneytið laus til umsóknar embætti tveggja dómenda og tveggja varadómenda við Endurupptökudóm og rann umsóknarfrestur út þann 5. október sl. Umsækjendur eru:

  1. Árni Ármann Árnason, lögmaður
  2. Árni Vilhjálmsson, lögmaður
  3. Ásgeir Jónsson, lögmaður
  4. Eiríkur Elís Þorláksson, dósent og forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík
  5. Eyvindur G. Gunnarsson, prófessor
  6. Finnur Vilhjálmsson, saksóknari
  7. Guðrún Björg Birgisdóttir, lögmaður
  8. Haukur Örn Birgisson, lögmaður
  9. Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður
  10. Jón Auðunn Jónsson, lögmaður
  11. Karl Ingi Vilbergsson, lögreglustjóri
  12. Reimar Pétursson, lögmaður
  13. Sigurður Jónsson, lögmaður
  14. Stefán Geir Þórisson, lögmaður
  15. Tómas Hrafn Sveinsson, lögmaður
  16. Tómas Jónsson, lögmaður
  17. Þyrí Steingrímsdóttir, lögmaður

 

Skipað verður í embættin frá 1. desember 2020.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum