Deildarstjóri/ yfirljósmóðir meðgönguverndar, fósturgreiningar og bráðaþjónustu kvennadeilda
Deildarstjóri/ yfirljósmóðir meðgönguverndar, fósturgreiningar og bráðaþjónustu kvennadeilda
Leitum eftir kraftmiklum stjórnanda til að leiða og efla starfsemi göngudeildar meðgönguverndar, fósturgreiningar og bráðaþjónustu kvennadeilda Landspítala. Deildin sinnir konum við eftirlit og umönnun vegna áhættuþátta á meðgöngu og einnig með bráð vandamál sem koma upp á meðgöngu eða eftir fæðingu. Deildin sinnir jafnframt konum í upphafi og aðdraganda fæðingar ásamt konum með bráð vandamál vegna kvensjúkdóma eða einkenna frá kvenlíffærum.
Deildarstjóri/ yfirljósmóðir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. desember 2020 eða eftir samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðumaður barna- og kvennaþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni, í nánu samráði við aðra stjórnendur
» Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á deildinni í samráði við forstöðumann barna- og kvennaþjónustu og mannauðsstjóra
» Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar í samráði við forstöðumann og fjármálastjóra barna- og kvennaþjónustu
Hæfnikröfur
» Íslenskt ljósmæðraleyfi
» Íslenskt hjúkrunarleyfi æskilegt
» Starfsreynsla sem ljósmóðir/ hjúkrunarfræðingur
» Viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi
» Viðbótarmenntun í ljósmóðurfræðum æskileg
» Þekking og reynsla af öryggis-, gæða- og umbótastarfi
» Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. faglegri ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslegri ábyrgð
» Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
» Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
» Fyrri störf, menntun og hæfni
» Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
» Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
» Ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.10.2020
Nánari upplýsingar veitir
Linda Kristmundsdóttir - [email protected] - 824-5997
Hrönn Harðardóttir - [email protected] - 897-5600
Skrifstofa aðgerðasviðs
Hringbraut
101 Reykjavík
Smellið hér til að sækja um starf