Hoppa yfir valmynd
16. október 2020

Héraðsfulltrúi á héraðssetrið á Húsavík

Héraðsfulltrúi á héraðssetrið á Húsavík


Landgræðslan óskar eftir að ráða héraðsfulltrúa á héraðssetrið á Húsavík með aðalstarfssvæði á Norðurlandi eystra. Héraðsfulltrúinn vinnur að jarðvegs- og gróðurvernd og endurheimt vistkerfa m.a. með því að stuðla að sjálfbærri nýtingu þeirra. Starfsmaðurinn þarf að vera tilbúinn til að taka þátt í þróun starfsins og breytingum sem kunna að verða á starfinu og vinnustaðnum. 
Landgræðslan er þekkingar- og þjónustustofnun. Markmið hennar eru verndun gróðurs og jarðvegs og bætt landgæði. Stofnunin starfar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 155/2018. 


Helstu verkefni og ábyrgð
Starfs- og ábyrgðarsvið
- Öflun og skráning upplýsinga, ráðgjöf og eftirlit með verkefnum s.s. Bændur græða landið, Landbótasjóði Landgræðslunnar og öðrum landgræðsluverkefnum 
- Umsjón landgræðslusvæða á starfssvæðinu
- Vinna við verkefni um endurheimt votlendis
- Vöktun á ástandi gróðurs og jarðvegs 
- Kortlagning og gerð uppgræðsluáætlana fyrir einstök landgræðslusvæði
- Skráning landgræðsluaðgerða og eftirlit með árangri þeirra
- Fræðsla og ráðgjöf til sveitarstjórna, fyrirtækja, landnotenda, skóla og almennings


Hæfnikröfur
Menntun og hæfni
- Krafist er BSc-prófs í náttúruvísindum, t.d. landnýtingu, beitarfræðum, búvísindum eða umhverfisfræðum
- Skipulagshæfni, sjálfstæði, sveigjanleiki og góð samstarfshæfni er skilyrði
- Góð kunnátta í notkun tölvu og upplýsingatækni er skilyrði
- Gott vald á íslensku, talaðri og ritaðri er skilyrði
- Þekking á starfssvæðinu er kostur
- Þekking eða reynsla af landbúnaði og gott landlæsi er kostur
- Þekking og reynsla af landgræðslustarfi er kostur
- Þekking og reynsla af notkun landupplýsingakerfa er kostur


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Um er að ræða 100% stöðu. Megin starfssvæðið er Norðurland eystra og starfinu geta fylgt talsverð ferðalög. Starfið hentar bæði konum og körlum. Laun eru skv. kjarasamningi ríkisins og Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN). 
Ferilskrá og afrit af prófskírteini skal fylgja. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.


Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2020


Nánari upplýsingar veitir
Gustav Magnús Ásbjörnsson - [email protected] - 4883000
Árni Bragason - [email protected] - 4883000



Landverndarsvið
Gunnarsholti
851 Hella



Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta