Hoppa yfir valmynd
6. nóvember 2020 Dómsmálaráðuneytið

Aukið framboð rafrænnar þjónustu hjá sýslumönnum

Enn fjölgar kostum rafrænnar þjónustu við almenning hjá sýslumannsembættum. Nú er hægt að sækja ýmis málsgögn vegna fjölskyldumála gegnum island.is.

Sýslumannsembættin hafa ráðist í fjölbreyttar aðgerðir til að bæta þjónustu við almenning með rafrænum lausnum, sem nú á tímum Covid-19 koma sér vel í þeirri viðleitni að draga úr smithættu, auðvelda almenningi að nálgast þjónustu embættanna og spara tíma og fyrirhöfn. Þær leiðir sem nú eru kynntar eru liður í  þróun stafrænnar þjónustu embættanna til framtíðar.

Embættin bjóða nú upp á sjálfsafgreiðslu sakavottorða (einkavottorð) og skil á rúmlega 50 eyðublöðum sem hægt er að fylla út og undirrita rafrænt. Jafnframt er boðið upp á netspjall á vef embættanna www.syslumenn.is.

  • Hægt er að sækja rafrænt um sakavottorð á island.is. Þá er jafnframt hægt að afla frekari upplýsinga um afgreiðslu sakavottorða (einkavottorð) á vef sýslumanna: www.syslumenn.is.
  • Rafræn eyðublöð sýslumanna eru m.a. aðgengileg á vefslóðinni www.syslumenn.is/eydublod og eru þau auðkennd sérstaklega sem „Stafrænt form“. Unnið er að því að fjölga stafrænum lausnum fyrir umsóknir til sýslumanna.

Nú þegar hafa yfir 1600 manns sótt eigin sakavottorð í gegnum vefinn island.is frá því opnað var fyrir þá lausn í júlí 2020 og rúmlega 800 einstaklingar skilað inn til sýslumanna rafrænum eyðublöðum. Þykja þessar tölur staðfesta að eftirspurn sé ótvírætt til staðar eftir slíkri þjónustu.

Sýslumenn vekja athygli á þeirri nýjung, að nú geta einstaklingar fengið ýmis málsgögn sem verða til við meðferð fjölskyldumála send með stafrænum hætti á pósthólf sín á island.is. Málsgögnin verða aðeins aðgengileg hlutaðeigandi, en til að komast inn á sitt svæði þarf fullgild rafræn skilríki.

Aukið framboð rafrænna og stafrænna lausna er tilkomið vegna samvinnu sýslu­mannsembættanna við dómsmálaráðuneytið, verkefnastofu um stafrænt Ísland, Þjóðskrá og ýmis hugbúnaðarfyrirtæki.

Viðskiptavinir embættanna eru eindregið hvattir til að kynna sér framboð rafrænna lausna á vefunum syslumenn.is og island.is.

Meðan samkomutakmarkanir eru í gildi vegna Covid-19 biðja embættin auk þess þá sem geta, að fresta umsóknum sem þola bið og ekki eru aðkallandi, svo sem vegabréfaumsóknir.

Gerum þetta saman - Við erum öll almannavarnir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum