Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Þorkell Lindberg skipaður í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands

Þorkell Lindberg Þórarinsson - mynd

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur tekið ákvörðun um að skipa Þorkel Lindberg Þórarinsson í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands til næstu fimm ára.

Þorkell er með BS gráðu í líffræði og lauk MS prófi í dýravistfræði frá Háskóla Íslands árið 2002. Hann hefur einnig lagt stund á diplómanám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.

Þorkell hefur starfað sem forstöðumaður Náttúrustofu Norðausturlands frá árinu 2003. Hann er stjórnarformaður Hvalasafnsins á Húsavík og Rannsóknastöðvarinnar Rifs, ásamt því að gegna formennsku í stjórn Náttúruverndarnefndar Þingeyinga. Þorkell hefur leitt og stýrt fjölda rannsóknaverkefna, sem og verið meðhöfundur fjölda ritrýndra vísindagreina.

Eiginkona Þorkels er Sesselja Guðrún Sigurðardóttir og eiga þau tvær dætur.

Embætti forstöðumanns Náttúrufræðistofnunar var auglýst í september og sóttu 12 um embættið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum