Hoppa yfir valmynd
25. nóvember 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Desemberuppbót atvinnuleitenda 2020

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, skrifar undir reglugerðina.  - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur undirritað reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda. Óskert desemberuppbót er 86.853 krónur. Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka desemberuppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára.

Rétt á fullri desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem hafa verið að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins, hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2020 og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2020. Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu og fjölda mánaða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Uppbótin verður þó aldrei lægri en sem nemur 21.713 krónum.

Uppbót vegna barns eða barna tekur engum skerðingum, heldur nemur í öllum tilvikum fjórum prósentum af óskertri desemberuppbót eða 5.211 krónum með hverju barni.

Desemberuppbót atvinnuleitenda verður greidd út eigi síðar en 15. desember næstkomandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum