Hoppa yfir valmynd
3. desember 2020 Forsætisráðuneytið

Aukaþing SÞ um COVID-19

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpar í kvöld sérstakt aukaþing Sameinuðu þjóðanna um COVID-19. Þingið hefst í dag og stendur í tvo daga.

Búast má við að ræða Katrínar, sem tekin var upp fyrr í vikunni, verði spiluð á milli klukkan 19:00 og 20:00 í kvöld en hægt er að fylgjast með þinginu á útsendingarvef Sameinuðu þjóðanna. 

Meðal áhersluatriða í ræðu forsætisráðherra eru jafnréttismál og vaxandi heimilisofbeldi í heimsfaraldrinum, mikilvægi þess að allir hafi jafnan aðgang að bóluefnum og heilbrigðisþjónustu og græn uppbygging í kjölfar COVID-19.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum