Hoppa yfir valmynd
10. desember 2020 Innviðaráðuneytið

Ráðherra úthlutar 76,5 milljónum krónum til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

 Húsavíkurhöfn - mynd Mynd: iStock

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur úthlutað styrkjum að upphæð 76,5 milljónum króna til níu verkefna á vegum fimm landshlutasamtaka sveitarfélaga. Styrkjunum er ætlað að efla byggðir landsins og er úthlutað til sértækra verkefna á sóknaráætlunarsvæðum í samræmi við stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024 (aðgerð C.1). Alls bárust 28 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmar 777 m.kr. fyrir árin 2020-2023.

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir og gerði tillögur til ráðherra. Byggðastofnun annast umsýslu verkefnastyrkjanna.

Verkefnin sem hljóta styrk eru:

  • Nýsköpunarnet Vesturlands. Verkefnið snýr að því að tengja saman þá aðila sem vinna að nýsköpun á Vesturlandi og efla þau nýsköpunarsetur og samvinnurými sem þegar eru til staðar. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hlýtur styrk að upphæð kr. 19.000.000,- sem skiptist þannig: 11.000.000,- á árinu 2021 og 8.000.000,- á árinu 2022.
  • Vínlandssetur í Dalabyggð. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hlýtur styrk að upphæð kr. 5.300.000,- á árinu 2020.
  • Hitaveita í Hrútafirði, mat á jarðhitasvæði og hugsanleg stækkun hitaveitu. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hlýtur styrk að upphæð um kr. 7.200.000,- á árinu 2021.
  • Sól í sveit – tóvinna, textíll og ferðamenn. Kynna á íslensku ullina, bjóða upp á námskeið og kennslu í textíl með nýtingu og vörusölu í huga. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hlýtur styrk að upphæð kr. 6.000.000,- á árinu 2021.
  • Friðlandsstofa – anddyri friðlands Svarfdæla í Dalvíkurbyggð. Stofnun og uppbygging friðlandsstofu. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra hlýtur styrk að upphæð kr. 35.000.000,- sem skiptist þannig: kr. 10.000.000,- á árinu 2021, kr. 15.000.000,- árið 2022 og kr. 10.000.000,- árið 2023.
  • Hraðið. Uppbygging frumkvöðlaseturs á Húsavík og myndun klasa nokkurra stofnana. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra hlýtur styrk að upphæð kr. 19.000.000,- á árinu 2021.
  • Gróðurhús í Öxarfirði. Markmið verkefnisins er að stuðla að frekari nýtingu á auðlindum svæðisins með því að taka skref í átt til uppbyggingar gróðurhúsa í tengslum við jarðhita. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra hlýtur styrk að upphæð kr. 2.000.000,- á árinu 2021.
  • Austurland – áfangastaður starfa án staðsetningar. Taka saman í eina gátt þau tækifæri sem bjóðast varðandi starfsaðstöðu, kortleggja þörf og skrá rými sem bjóðast. Samtök sveitarfélaga á Austurlandi hlýtur styrk að upphæð kr. 8.000.000,- á árinu 2021.
  • Skipaþjónustuklasi á Suðurnesjum. Kortleggja og skilgreina uppbyggingu nýs klasa á Suðurnesjum. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hlýtur styrk að upphæð kr. 8.000.000,- á árinu 2021.

Í valnefndinni sitja þau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Magnús Karel Hannesson, fv. sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, og Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, sem er formaður. Með valnefnd starfa Jóhanna Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í ráðuneytinu, og Sigríður K. Þorgrímsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024.

Alls hafa 473 m.kr. verið ráðstafað til verkefnanna fyrir árin 2018-2023 en markmiðið með framlögunum er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Áhersla er lögð á að styrkja svæði þar sem er langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf. Verkefni sem hljóta styrk skulu nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans, eða landshlutanum í heild. Íbúaþróun, samsetning atvinnulífs og atvinnustig og meðaltekjur var meðal þess sem lagt til grundvallar við mat á umsóknum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum