Hoppa yfir valmynd
10. desember 2020 Forsætisráðuneytið

Stelpur rokka og loftslagsverkfall hljóta Jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs 2020 ​

Frá vinstri: Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Aðalbjörg Egilsdóttir (Loftslagsverkfall), Sigrún Jónsdóttir (Loftslagsverkfall), Halla Björg Randversdóttir (Stelpur rokka!), Áslaug Einarsdóttir (Stelpur rokka!), Anna Sæunn Ólafsdóttir (Stelpur rokka!) og Silja Bára Ómarsdóttir, formaður Jafnréttisráðs. - mynd
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs á Nauthóli í gær. Stelpur rokka! og Loftslagsverkfall ungs fólks hlutu viðurkenninguna í ár. Í rökstuðningi Jafnréttisráðs segir að Stelpur rokka! hafi með starfi sínu skapað rými fyrir stúlkur og ungt kynsegin fólk til að stíga fyrstu skrefin í tónlistarsköpun. Þær hafi einnig aukið kjark og þor sem muni setja mark sitt á framtíð tónlistarsköpunar á Íslandi. Loftslagsverkfall ungs fólks hlýtur sérstaka hvatningarviðurkenningu vegna baráttu sinnar fyrir aðgerðum á sviði loftslagsmála. Í rökstuðningi Jafnréttisráðs segir að í baráttu unga fólksins sé jafnrétti samofið skýrri framtíðarsýn. Með framtakinu felist heit inn í bjartari og réttlátari framtíð.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Samkomutakmarkanir hafa minnt okkur áþreifanlega á hversu mikilvægu hlutverki menning og listir gegna í samfélagi okkar. Stelpur rokka! hafa veitt ungum stúlkum og kynsegin ungmennum hvatningu tíl að skapa tónlist á eigin forsendum og sú sköpun mun gera líf okkar allra auðugra. Þá er einnig mikilvægt að muna að loftslagsváin hverfur ekki þó mikil athygli og áhersla sé á baráttuna við COVID-19. Nú er nauðsynlegt sem aldrei fyrr að vera meðvituð um umhverfismál, þegar samfélög um allan heim huga að enduruppbyggingu og endurreisn hagkerfa.“

Markmiðið með jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs er að veita viðurkenningu fyrir mikilvæg og metnaðarfull störf í þágu jafnréttis. Þá er viðurkenningin einnig hugsuð sem frekari hvatning til dáða.

  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Aðalbjörg Egilsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Silja Bára Ómarsdóttir, formaður Jafnréttisráðs. Aðalbjörg og Sigrún tóku við hvatningarviðurkenningu fyrir Loftslagsverkfall ungs fólks.  - mynd
  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Halla Björg Randversdóttir, Anna Sæunn Ólafsdóttir, Áslaug Einarsdóttir ásamt Silju Báru Ómarsdóttur, formanni Jafnréttisráðs.  - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum