Hoppa yfir valmynd
21. desember 2020 Forsætisráðuneytið

Réttindi trans og intersex fólks og barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni samþykkt á Alþingi

Frumvörp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, sem tryggja eiga rétt fólks með kynhlutlausa skráningu og trans fólks auk barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni voru samþykkt fyrir helgi.

Þær breytingar sem felast í frumvörpunum þremur sem samþykkt voru við þinglok koma til vegna bráðabirgðaákvæðis í lögum um kynrænt sjálfræði sem samþykkt voru á Alþingi sumarið 2019.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra: „Með frumvörpunum samþykkti Alþingi miklar réttarbætur fyrir unglinga sem upplifa kynmisræmi enda hafa rannsóknir sýnt að það skiptir sköpum fyrir líðan og geðheilsu trans unglinga að sjálfsmynd þeirra njóti viðurkenningar aðstandenda og vina og að þau mæti skilningi í félagslegum samskiptum sínum við aðra. Og einnig hvað varðar fólk með hlutlausa kynskráningu og trans fólk, meðal annars að því er varðar barneignir. Nú er kynskráning þeirra viðurkennd að fullu og jafnræðis gætt að lögum. Enn fremur er um að ræða mikla réttarbót fyrir börn sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni og aðstandendur þeirra.“

Frumvörpin eru þrjú. Í fyrsta lagi er um að ræða frumvarp um breytt aldursviðmið til að breyta opinberri skráningu kyns samhliða nafni. Þar er lagt til að miða við 15 ára aldur í stað 18 ára. Í öðru lagi  er frumvarp sem tryggir rétt barna, sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni, gegn ónauðsynlegum skurðaðgerðum og þannig er staðið vörð um líkamlega friðhelgi þeirra. Í þriðja lagi frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum til að tryggja lagaleg réttindi fólks með kynhlutlausa skráningu og trans fólks.

Frumvörpin byggja á vinnu starfshópa sem skiluðu af sér tveimur skýrslum þar sem ítarlega er farið yfir þær helst mannréttindareglur og tilmæli stofnana í málefnum hinsegin fólks auk þess sem farið var ítarlega yfir helstu álitaefni, lagaleg og siðfræðileg sem málið varða.Starfshóparnir voru skipaðir fulltrúum hagsmunaaðila, barnaskurðlækni, barnainnkirtlalækni, siðfræðingi, barnasálfræðingi, kynjafræðingi, mannréttindalögfræðingi og lögfræðingi með sérþekkingu á réttindum barna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum