Hoppa yfir valmynd
22. desember 2020 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi

Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smurostum frá Noregi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31. desember 2021. 

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Úr tollskrárnr.:

 

 

kg

%

kr./kg

0406.3000

Smurostur

01.01.-31.12.21

13.000

0

0

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar.

Úthlutun er ekki framseljanleg.

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 6. janúar 2021.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum