Hoppa yfir valmynd
22. desember 2020 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi

Með vísan til sérstaks samnings milli Íslands, Bretlands og Noregs um viðskipti með landbúnaðarvörur, á grundvelli 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993 og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í Bretlandi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31. desember 2021:

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Úr tollskrárnr.

 

 

kg

%

kr./kg

ex0406

Ostur og ystingur (**)

01.01. - 31.12.21

11.000

0

0

 

0406

Ostur og ystingur

01.01. - 31.12.21

19.000

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

01.01. - 31.12.21

18.000

0

0

(**) PDO eða PGI. Skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex 0406(**) en auglýstum tollkvóta nemur skal tollkvótanum úthlutað eftir hlutkesti. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 16:00 miðvikudaginnp 6. janúar 2021.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum