Hoppa yfir valmynd
22. desember 2020 Innviðaráðuneytið

Endanleg framlög Jöfnunarsjóðs fyrir 2020 - 400 milljóna kr. hækkun útgjaldajöfnunarframlaga

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun tekjujöfnunarframlags, útgjaldajöfnunarframlags, framlags vegna tekjutaps fasteignaskatts og framlags vegna sérþarfa fatlaðra nemenda fyrir árið 2020.

Útgjaldajöfnunarframlög 2020

Ráðherra samþykkti tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga fyrir árið 2020, skv. 14. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 1088/2018. Samþykkt var að hækka útgjaldajöfnunarframlög sjóðsins vegna ársins 2020 um 400 m.kr. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi.

Nema framlögin samtals 10.200 m.kr. þar af eru framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli á árinu samtals að fjárhæð 750,0 m.kr og framlög vegna akstursþjónustu fatlaðra úr dreifbýli að fjárhæð 18 m.kr. Til greiðslu á árinu hafa komið samtals 8.181 m.kr. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð 2.019 m.kr. koma til greiðslu milli jóla og nýárs. Meðtalin í þeirri greiðslu eru viðbótarframlög vegna skólaaksturs að fjárhæð 175,0 m.kr. og framlög vegna akstursþjónustu fatlaðra úr dreifbýli að fjárhæð 18 m.kr. 

Tekjujöfnunarframlög 2020

Þá var samþykkt tillaga ráðgjafarnefndarinnar um endurskoðaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga fyrir árið 2020, skv. 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 1088/2018. Við endurskoðunina var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna tekna á árinu 2019.

Heildarúthlutun tekjujöfnunarframlaga í ár nemur 1.250,0 m.kr. Um ¾ hlutar framlaganna að fjárhæð 937,5 m.kr. komu til greiðslu í október. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð 312,5 m.kr. koma til greiðslu milli jóla og nýárs.

Framlag til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts

Ráðherra samþykkti jafnframt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um endurskoðaða úthlutun framlags til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts fyrir árið 2020, skv. reglugerð nr. 80/2001. Endurskoðunin tekur mið af auknu ráðstöfunarfjármagni sjóðsins til greiðslu framlagsins.

Heildarúthlutun framlagsins í ár nemur 4.472,6 m.kr. Nú þegar hafa 4.397,6 m.kr. komið til greiðslu. Eftirstöðvar framlagsins að fjárhæð 75 m.kr. koma til greiðslu milli jóla og nýárs.

Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda

Ráðherra hefur einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um endurskoðaða og endanlega áætlun um úthlutun framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á grunnskólaaldri á árinu 2020, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 351/2002.  Framlögin nema samtals 2.682 m.kr. á þessu ári.

Framlögin eru veitt á grundvelli umsókna sveitarfélaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda er lögheimili eiga í sveitarfélaginu, óháð því hvar nemendurnir fá kennslu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum