Hoppa yfir valmynd
22. desember 2020 Matvælaráðuneytið

Kaup og sala greiðslumarks í sauðfé

Auka innlausnarmarkaður greiðslumarks í sauðfé og úthlutun þess til umsækjenda fór fram nú í desember.  Markaðurinn var haldinn að tillögu landssamtaka sauðfjárbænda um að auka greiðslumark á markaði fyrir sauðfjárbændur.  Framkvæmdin miðast við að jafna stöðu bænda innan kerfisins þar sem greiðslumarki er beint til þeirra hópa sem framleitt hafa með minnstum opinberum stuðningi.  

Til sölu á markaðnum voru 5.332 ærgildi, þar af 4.906 ærgildi sem innleyst  voru á árunum 2017 og 2018.  Greiðslumark innleyst af framleiðendum voru 426 ærgildi.  Óskir um kaup voru 201 talsins og námu samtals 62.720 ærgildum.   Í heildina er hlutfall til úthlutunar  9,4% af óskum um kaup.  

Niðurstaða úthlutunar er birt á heimasvæði hvers framleiðanda í afurd.is.  

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum