Hoppa yfir valmynd
26. janúar 2021 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarafurðum frá Bretlandi fyrir tímabilið janúar til desember 2021

Brexit - mynd Mynd: iStock

Fimmtudaginn 14. janúar 2021 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi samkvæmt reglugerð nr. 1321/2020 fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2021. Samtals bárust sex gild tilboð í tollkvótann.

 

Ostar og ystingur í vörulið 0406. Fimm tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 32.000 kg. á meðalverðinu 286 kr./kg. Hæsta boð var 720 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 19.000 kg. á meðalverðinu 443 kr./kg.

 

Ostur og ystingur úr vörulið ex0406;...(**). Fimm umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið ex 0406...(**) samtals 11.000 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 1321/2020 er tollkvóta úr vörulið ex0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 11.000 kg., til fimm fyrirtækja.

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

 

Annað kjöt...., unnið eða varið skemmdum-... í vörulið 1602. Fjögur tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 60.000 kg. á meðalverðinu 366 kr./kg.  Hæsta boð var 675 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 18.000 kg. á meðalverðinu 675 kr./kg.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

 

Ostur og ystingur 0406

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

10.000

KFC ehf

3.000

Krónan ehf

3.000

Mjólkursamsalan ehf

1.000

Natan & Olsen ehf

2.000

Samkaup sf

 

Ostur og ystingur ex 0406 (**)

Úthlutað magn (kg)

Tilboðsgjafi

1.000

KFC ehf

3.350

Krónan ehf

3.000

Mjólkursamsalan ehf

1.650

Natan & Olsen ehf

2.000

Sælkeradreifing ehf

 

 

Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

18.000

Samkaup sf

 

Reykjavík, 25. janúar 2021

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum