Hoppa yfir valmynd
22. febrúar 2021 Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara skilar umsögn um umsækjendur um embætti landsréttardómara

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni um umsækjendur um skipun í embætti dómara við Landsrétt sem auglýst var laust til umsóknar 20. nóvember 2020. Umsóknarfrestur var til 7. desember 2020. Alls bárust þrjár umsóknir um embættið.

Niðurstaða dómnefndar er að Símon Sigvaldason, héraðsdómari, sé hæfastur umsækjenda til að hljóta skipun í hið lausa embætti dómara við Landsrétt.

Dómnefndina skipuðu: Eiríkur Tómasson, formaður, Guðrún Björk Bjarnadóttir, Halldór Halldórsson, Helga Melkorka Óttarsdóttir og Kristín Benediktsdóttir.

Hér má lesa umsögn dómnefndar

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum