Hoppa yfir valmynd
5. mars 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Kallar eftir „einföldunarbyltingu“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kallaði eftir „einföldunarbyltingu“ í ræðu sinni á Iðnþingi í gær.

Sagðist ráðherra sammála Samtökum iðnaðarins um að nauðsynlegt væri að „hlaupa hraðar“ til að sækja þau tækifæri sem Ísland stæði frammi fyrir.

„Fyrir um þrjátíu árum eða svo má segja að bylting hafi hafist á Íslandi sem leysti okkur úr mörgum gömlum viðjum. Hún er oftast kennd við frjálshyggju og gekk aðallega út á að draga ríkisvaldið út af mörgum sviðum þar sem það hafði verið alltumlykjandi, og auka frelsi einkaframtaksins til að eiga viðskipti og skapa verðmæti,“ sagði Þórdís Kolbrún í ræðu sinni.

„Dómur framtíðarinnar verður vonandi sá, að nú á síðastliðnum árum hafi orðið hér á landi hugarfarsbylting sem gerði Ísland að nýsköpunarlandi. Við þurfum að halda áfram að stuðla að því.

Næsta bylting sem ég myndi vilja sjá eiga sér stað á Íslandi er einföldunarbylting. Við Íslendingar höfum því miður komið okkur upp alltof flóknu regluverki, sem er dálítið sérstakt með hliðsjón af því hvað við erum lausnamiðuð og viljum geta hreyft okkur hratt. Ferli og reglur eru vissulega nauðsynleg, en á einhverjum tímapunkti hætta þær einfaldlega að bæta umhverfi okkar og byrja að spilla því. Ferli og reglur eiga að koma í veg fyrir að við hlaupum út í skurð, en þær mega ekki koma í veg fyrir að við getum hlaupið eða að við getum yfirhöfuð grafið skurði.

Samanburður við aðrar þjóðir er ágætur mælikvarði á hæfilegt umfang regluverks. Ég átti frumkvæði að því að fá OECD til liðs við okkur til að meta reglubyrði í byggingariðnaði og ferðaþjónustu, til að varpa ljósi á samkeppnishæfni okkar hvað þetta varðar. Niðurstaðan var sláandi. Regluverkið er alltof íþyngjandi og umfangsmikið, ekki síst í byggingariðnaði.

Við verðum að bæta úr þessu og að mínu mati vinna sambærilegar greiningar á fleiri sviðum samfélagsins. Við vitum vel að tækifærin til einföldunar eru víða, því að sums staðar virðumst við ekki lengur geta hlaupið fyrir regluverki,“ sagði Þórdís Kolbrún.

Í ræðunni nefndi Þórdís Kolbrún meðal annars „Græna dregillinn“, samvinnuverkefni ráðuneytisins og Íslandsstofu sem ætlað er að greiða götu grænna fjárfestinga hér á landi, en skrifað var undir samkomulag um verkefnið í gær.

Iðnþingsræðu ráðherra má lesa í heild sinni hér.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum