Hoppa yfir valmynd
12. mars 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Ísland ljóstengt: Þrettán sveitarfélögum stendur til boða samtals 180 milljónir í styrki

Frá Hrísey - mynd Mynd: iStock

Fjarskiptasjóður hefur lokið yfirferð á styrkumsóknum í B-hluta Ísland ljóstengt 2021 og vegna ljósleiðarastofnstrengja. Þrettán sveitarfélögum stendur til boða samtals 180 milljónir króna. Tilboð fjarskiptasjóðs nær til allra styrkhæfra staða sem sótt var um í þessari lokaúthlutun verkefnisins. 

Eftirfarandi styrkupphæðir standa sveitarfélögum til boða vegna tilgreindra styrkbeiðna eða áfanga.

Sveitarfélag Styrkbeiðni Áfangar Styrkupphæð í boði kr.
Akrahreppur 3   6.000.000
Akureyrarbær
Stofnstrengur til Hríseyjar 6.000.000
Árneshreppur   1, 2, 3 25.200.000
Árneshreppur
Stofnstrengur til Djúpavíkur 21.300.000
Dalabyggð 2   3.500.000
Húnaþing vestra 1 1, 2 33.500.000
Fjarðabyggð   1, 2 17.000.000
Ísafjarðarbær   1, 2, 3, 4 14.000.000
Múlaþing 1 Berufjörður 27.000.000
Reykjanesbær        7.000.000
Skaftárhreppur           2.400.000
Strandabyggð 2      2.200.000
Suðurnesjabær        12.700.000
Tálknafjarðarhreppur 2   2.200.000

 

Frestur sveitarfélaga til að þiggja eða hafna tilboði fjarskiptasjóðs um styrki rennur út miðvikudaginn 17. mars nk. kl. 12:00. Tilkynning þar að lútandi sendist á netfangið [email protected].

Skuldbinding um greiðslu er með fyrirvara um útfærslu og undirritun samnings.

Til viðbótar stendur Múlaþingi til boða 71.000.000 kr. (vegna Fljótsdalshéraðs) og Borgarbyggð 181.000.000 kr. á þessu ári, sem síðustu áfangagreiðslur í þeirra ljósleiðaraverkefnum á grundvelli Ísland ljóstengt.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum