Hoppa yfir valmynd
23. mars 2021 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Reykir verða áfram miðstöð garðyrkjunáms

Garðyrkjuskólinn að Reykjum hefur í rúm 80 ár verið bakbeinið í íslensku garðyrkjunámi. Skólinn hefur menntað fólk til starfa í garðyrkjutengdum atvinnugreinum og skapað þekkingu sem hefur sjaldan verið mikilvægari en nú.

Þegar Landbúnaðarháskóli Íslands (LBHÍ) tók til starfa árið 2005 var starfsemi Garðyrkjuskólans færð undir hinn nýja skóla, að frumkvæði Garðyrkjuskóla ríkisins. Starfsemin hélt áfram að Reykjum, en yfirstjórn skólans færðist til Hvanneyrar. Ætluð samlegð af háskólastarfsemi LBHÍ og framhaldsskólastarfsemi Reykja hefur hins vegar ekki raungerst, enda hefur komið á daginn að þarfirnar eru ólíkar. Lykilfólk hefur talið að skólarnir eigi ekki lengur samleið og ætlaður ávinningur af nánu samstarfi hefur því ekki gengið eftir að öllu leyti.

Starfsemin tryggð

Fulltrúar garðyrkjunnar hafa kallað eftir breytingum á núverandi fyrirkomulagi og því fól ég sérfræðingum ráðuneytisins að kanna málið vandlega og gera tillögur, ef slíkra reyndist þörf. Útgangspunkturinn í þeirri athugun var að tryggja sem best starfsemina að Reykjum, starfsöryggi þeirra sem þar starfa og hagsmunum nemenda. Að vel athuguðu máli var ákveðið að efla námið að Reykjum, skilja það frá LBHÍ og vinna með Fjölbrautarskóla Suðurlands – einum öflugasta starfsmenntaskóla landsins. Við þá breytingu þarf að huga vel að stjórnsýslureglum, faglegum kröfum til menntastofnana, fjárveitingum til starfseminnar og réttindum starfsfólks og nemenda.

Græn framtíð

Við undirbúning breytinganna þarf að huga að starfsöryggi og fjölda stöðugilda að Reykjum og vissa að skapast um fjármögnun garðyrkjunámsins. Tryggja þarf afnot af jarðnæði og eignum, bæta aðgengi nemenda að aðstöðu til verklegrar kennslu og fjárfesta til framtíðar. Þá felast óteljandi tækifæri í samstarfinu við aðrar deildir fjölbrautarskólans, þar sem garðyrkjunemar geta stundað viðbótarnám í öðrum greinum og öfugt. Samband Fjölbrautarskólans við atvinnulíf í Suðurlandi er sterkt og við blasir að nemendur að Reykjum njóti góðs af frábæru starfi og nýsköpun einkarekinna gróðrastöðva á Suðurlandi. Undirbúningur breytinga gengur vel og þarfagreiningar skólanna liggja fyrir, en þær hafa m.a. verið unnar með fulltrúum Garðyrkjuskólans og atvinnulífi garðyrkjunnar.

Má ekki verða að pólitísku bitbeini

Nokkur umræða hefur skapast um Reyki á undanförnum misserum og m.a. hafa stjórnmálamenn kveðið sér hljóðs með greinaskrifum og fyrirspurnum. Ég fagna auknum áhuga á málinu, enda er það markmið allra málsaðila að tryggja viðveru og vöxt hins glæsilega menntstarfs sem fram fer að Reykjum. Ábendingar nemenda og kennara eru jafnframt gott innlegg í samvinnuna sem er í fullum gangi, svo hinir sögufrægu Reykir – fyrrum setur höfðingja á borð við Gissur jarl Þorvaldsson og Odd Gottskálksson – mun blómstra um ókomna tíð.

-

Birtist fyrst í Morgunblaðinu, 23. mars 2021

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum