Hoppa yfir valmynd
23. mars 2021 Matvælaráðuneytið

Taktu þátt í rafrænu Loftslagsmóti 2021

Loftslagsmót er vettvangur fyrir fyrirtæki sem leitast eftir eða bjóða upp á ráðgjöf og lausnir, á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við loftslagsvænni rekstur.

 

Markmið Loftslagsmóts eru að:

  • Hvetja fyrirtæki til að kynna sér þær grænu lausnir sem eru í boði.
  • Bjóða fyrirtækjum upp á vettvang til að kynna sínar lausnir og þjónustu.
  • Stuðla að jákvæðum aðgerðum í rekstri fyrirtækja í þágu loftslagsmála.

Loftlagsmótið var fyrst haldið í mars 2020 og heppnaðist einstaklega vel. Þar voru um 230 fundir haldnir með yfir 90 stofnunum og fyrirtækjum. 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra:

 

„Loftslagsmál eru okkar allra og atvinnulífið leikur stórt hlutverk þegar kemur að tækniþróun, nýsköpun, hönnun og umhverfisvænum lausnum. Loftslagsmót gefur tækifæri til að tengja saman lausnir og þarfir á þessu sviði og styður við gróskumikið starf í þágu loftslagsmála. Með samvinnu náum við okkar markmiðum og ég hvet fyrirtæki og einstaklinga til að nýta tækifærið, styrkja tengslin og taka þátt í því að skapa okkur og komandi kynslóðum betri framtíð.“

 

Allir sem skrá sig hafa þann kost að bóka fundi með öðrum þátttakendum á Loftslagsmótinu. Loftslagsmót 2021 leiðir saman fyrirtæki, stofnanir, frumkvöðla og aðra úr atvinnulífinu á stuttum fundum til að ræða málin og kynnast loftslagsvænum lausnum við hæfi. Eins fá fyrirtæki kost á því að eiga fundi við valda aðila úr stuðningsumhverfið sem veita ráðgjöf varðandi styrkjamöguleika, nýsköpunarþróun og vaxtamöguleika á alþjóðavettvangi.  

 

Loftslagsmót 2021 fer fram með rafrænum hætti þann 21. apríl kl. 9-12. Nauðsynlegt er að skrá sig til að taka þátt.

Skráðu þig á loftslagsmót!

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum