Hoppa yfir valmynd
25. mars 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Breyting á reglugerð um verndun vatnasviðs og lífríkis Þingvallavatns í samráðsgátt ​

Þingvallavatn - myndHugi Ólafsson

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um framkvæmd verndunar vatnasviðs og lífríkis Þingvallavatns.

Breytingin heimilar að skólp frá húsum við Þingvallavatn verði hreinsað með tveggja þrepa hreinsun  þar sem aðstæður leyfa. Ástand Þingvallavatns verður áfram vaktað og gripið til aðgerða eftir þörfum.

Vöktunargögn sýna að ástand Þingvallavatns er gott og hvorki eru merki um ofauðgun næringaefna, né hafi ástandi vatnsins hrakað með tilliti til tærleika, styrks köfnunarefnis, blaðgrænu og þörunga.

Heilbrigðisnefnd Suðurlands vinnur að endurskoðun aðgerðaáætlunar fyrir verndun vatns samkvæmt gildandi ákvæðum reglugerðarinnar. Fyrirmæli um frágang á fráveitum verða hluti af áætluninni og verður lóðarhöfum við Þingvallavatn gert að vinna eftir þeim.

Umsögnum um drögin að reglugerðinni skal skilað í samráðsgátt stjórnvalda eigi síðar en 13. apríl næstkomandi.

Breyting á reglugerð um verndun vatnasviðs og lífríkis Þingvallavatns

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum