Hoppa yfir valmynd
30. mars 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Opinn kynningarfundur á niðurstöðum um hagi og líðan aldraðra á Íslandi 2020

Félagsmálaráðuneytið, velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Landssamband eldri borgara fengu Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands til að gera fyrir sig könnun á högum og líðan aldraðra á Íslandi 2020. Rafræn kynning á niðurstöðum könnunarinnar verður haldin 7.  apríl nk. kl. 13. Helgi Guðmundsson verkefnastjóri hjá Félagsvísindastofnun mun kynna niðurstöðurnar.

Vegna Covid-19 faraldursins verður fundurinn haldinn á Teams. Ekki þarf að vera með Teams uppsett á tölvu til að geta horft á fundinn. Smelltu hér til að tengjast fundinum. Ekki er þörf á skráningu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum