Hoppa yfir valmynd
21. apríl 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Nýsamþykkt lög stuðla að stórauknum framlögum til almannaheillastarfsemi

Gera má ráð fyrir milljarðaaukningu til almannaheillastarfsemi með nýsamþykktu frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra.

Nýsamþykkt lög taka gildi 1. nóvember 2021. Þau fela í sér nýja heimild fyrir einstaklinga til að draga allt að 350 þúsund krónur á ári frá skattskyldum tekjum sínum utan atvinnurekstrar vegna framlaga til almannaheillastarfsemi. Þá er einnig kveðið á um tvöföldun á hlutfalli sem atvinnurekstraraðilar mega draga frá skattskyldum tekjum vegna slíkra framlaga og fer það úr 0,75% í 1,5%. Slík framlög hækkuðu um milljarð króna árið 2016, þegar hlutfallið var hækkað úr 0,5% í 0,75%.

Við þetta bætist að nýleg frádráttarheimild atvinnurekenda vegna framlaga til kolefnisjöfnunar tvöfaldast, úr 0,75% í 1,5%. Alls geta atvinnurekendur því fengið frádrátt sem nemur 3% á ári vegna framlaga sinna.

Samkvæmt lögunum ber þeim sem styrkja almannaheillastarfsemi með þessum hætti að fá móttökukvittun frá móttakanda styrksins, en móttakandi sendir Skattinum í kjölfarið nauðsynlegar upplýsingar um gjafir eða framlög frá einstaklingum á hverju almanaksári. Umræddar upplýsingar eru í framhaldinu forskráðar á skattframtal einstaklings vegna næstliðins tekjuárs.

Þá þarf það skilyrði að vera uppfyllt að móttakandi gjafar eða framlags sé skráður í sérstaka almannaheillaskrá hjá fyrirtækjaskrá Skattsins á því tímamarki þegar gjöf er afhent eða framlag er veitt.

Léttari skattbyrði

Samhliða auknum hvötum til að styðja við almannaheillastarfsemi voru samþykktar ýmsar undanþágur frá greiðslu skatta fyrir félög til almannaheilla. Þannig er lagt til að þau verði undanþegin greiðslu tekjuskatts og staðgreiðslu skatts af fjármagnstekjum, auk undanþágu frá greiðslu virðisaukaskatts með nánar tilgreindum skilyrðum.

Enn fremur var samþykkt að aðilar sem starfa til almannaheilla verði undanþegnir greiðslu stimpilgjalda og geti auk þess sótt endurgreiðslu allt að 60% greidds virðisaukaskatts af vinnu manna á byggingarstað við byggingu, viðhald eða endurbætur á mannvirkjum sem alfarið eru í eigu þeirra. Þá er í lögunum veitt undanþága frá greiðslu erfðafjárskatts af gjöfum til aðila í almannaheillastarfsemi.

Ný lög fela í sér að hugtakið almannaheill er tekið upp í 4. grein laga um tekjuskatt í stað orðsins almenningsheill. Í ákvæðinu er nánar tilgreint hvaða aðilar falla undir skilgreininguna, en til þeirra teljast meðal annars ýmis mannúðar- og líknarstarfsemi, æskulýðs- og íþróttastarfsemi, björgunarsveitir og neytenda- og forvarnarstarfsemi.

Gert er ráð fyrir að lagabreytingin hafi neikvæð áhrif á skatttekjur ríkissjóðs sem nemur um 2 milljörðum króna á ári, en áhrifin eru ótímabundin.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra:

“Bætt umhverfi almannaheillastarfsemi hefur verið mér hugleikið um árabil. Það er því gríðarlega ánægjulegt að frumvarpið sé orðið að lögum, en málið hlaut afgerandi stuðning í þinginu. Með lögunum breikkum við tekjustofn almannaheillafélaga verulega og aukum á sama tíma möguleika fólks til að styðja við félög að eigin vali, án milligöngu ríkisins.”

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum