Hoppa yfir valmynd
14. maí 2021 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss.

 

Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 542/2021 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á kjöti úr dýrum af nautgripakyni og osti og ystingi, fyrir tímabilið 1. júlí 2021 til 30. júní 2022:

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollskrárnr:

kg

%

kr./kg.

ex0210.xxxx

Nautgripkjöt - Vöruliður 0210:

01.07.20-30.06.22

10.000

0

0

Kjöt af dýrum af nautgripakyni:

0210.2001

-- Beinlaust

0

0

0210.2009

-- Annars

0

0

0406.xxxx

Ostur og ystingur:

01.07.20-30.06.22

15.000

0

0

 

 

Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 1250/2019, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Við útboð tollkvótans verða hæstu verðtilboð í tiltekið magn valin þar til magni tollkvóta sem til ráðstöfunar er hefur verið náð.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 25. maí 2021.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. maí 2021.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum