Hoppa yfir valmynd
26. maí 2021 Matvælaráðuneytið

Kristján Þór og BÍ semja um nýtt íslenskt búvörumerki

Kristján Þór og Gunnar undirrituðu samninginn í dag. - mynd

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag samning við Bændasamtök Íslands um gerð íslensks búvörumerkis. Um er að ræða nýtt valfrjálst upprunamerki fyrir íslenskar landbúnaðarvörur.  Því er ætlað að afmarka með skýrari hætti innlenda landbúnaðarframleiðslu á heimamarkaði og bæta þar með upplýsingagjöf til neytenda. Með því verður sérstaða íslenskra búvara betur tryggð en sambærileg merki eru til í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.

 

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Það er sameiginlegt hagsmunamál neytenda, stjórnvalda, verslunarinnar, framleiðenda og innflytjenda að bæta enn frekar merkingar á matvælum og tryggja þannig betur rétt neytenda til upplýsinga, m.a. um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif þeirra. Samkomulagið sem við undirritum í dag er til þess fallið að tryggja betur sérstöðu innlendra búvara á markaði ogum leið auðvelda neytendum að átta sig á því hvort matvæli séu framleidd úr innlendum búvörum eða ekki. Sérstakt búvörumerki fyrir íslenska framleiðslu að norrænni fyrirmynd er því mikið hagsmunamál fyrir neytendur og innlenda framleiðendur búvara.” 

 

Gerð búvörumerkisins er liður í aðgerðaráætlun ráðherra til eflingar íslensks landbúnaðar og er gert að norrænni fyrirmynd. Notkun á íslensku búvörumerki byggir einnig á tillögu starfshóps um betri merkingar matvæla. Með því verða íslenskar landbúnaðarvörur merktar með skýrum hætti til hagsbóta fyrir bæði neytendur og innlenda framleiðslu.

 

Bændasamtökin munu eiga og reka merkið, gefa út leiðbeiningar um notkun þess og skipuleggja eftirlit með henni. Samtökin fá fjármuni úr rammasamningi landbúnaðarins til útfæra og undirbúa útgáfuna, en jafnframt er gert ráð fyrir að framleiðendur sem nota merkið á vörur sínar greiði fyrir það. Vinna hefst nú um mánaðarmótin en opinber útgáfa verður í október nk. 

 

Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands:

„Við framleiðslu íslenskra landbúnaðarafurða er nauðsynlegt að merkingar fyrir neytendur séu skýrar. Með þessu samkomulagi um búvörumerki sem undirritað er í dag er lagður grunnur að uppbyggingu og innleiðingu á merki sem nýtast mun öllum framleiðendum íslenskra afurða. Þar horfum við til smásölu, og ekki síður í mötuneytum og veitingarstöðum svo neytandinn gangi að því vísu að um íslenska framleiðslu er að ræða. Eitt af grundvallar atriðum er að merkið byggi á traustum grunni svo neytendur verði aldrei í vafa um að um íslenska framleiðslu er að ræða. Við munum leita í smiðjur nágranna okkar um regluverk og skilyrði með notkun merkisins.“

 

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum