Hoppa yfir valmynd
26. maí 2021 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið júlí – desember 2021

Föstudaginn 21. maí 2021, rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2021, sbr. reglugerð nr. 1324/2020.

Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi plöntum með knúppum eða blómum þó ekki kaktusar, úr tollskrárnúmerum (0602.9081-9083 og 0602.9088), samtals 3.150 stk., á meðalverðinu 108 kr./stk.  Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 89 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 1.650 stk. á meðalverðinu 118 kr./stk.

Tvö tilboð bárust um innflutning á pottaplöntum til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna í tollskrárnúmeri (0602.9093), samtals 4.160 stk., á meðalverðinu 111 kr./stk.  Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 97 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.160 stk. á meðalverðinu 119 kr./stk.

Tvö tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum úr tollskrárnúmeri (0603.1400), samtals 9.000 stk., á meðalverðinu 54 kr./stk.  Hæsta boð var 55 kr./stk. en lægsta boð var 50 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 6.500 stk. á meðalverðinu 55 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á afskornum blómum og blómknöppum sem notað er í vendi…. úr tollskrárnúmerum (0603.1903, 0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999), samtals 143.750 stk. á meðalverðinu 43 kr./stk.  Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 15 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 118.750 stk. á meðalverðinu 45 kr./stk.

Atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur júlí - desember 2021

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.500

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

150

Húsasmiðjan/Blómaval

 

Aðrar pottaplöntur júlí – desember 2021

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

2.000

Garðheimar–Gróðurvörur ehf

160

Húsasmiðjan/Blómaval

 

Tryggðablóm júlí – desember 2021

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

2.500

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

4.000

Samasem ehf

 

Afskorin blóm júlí - desember 2021

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

15.000

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

103.750

Samasem ehf

 

Reykjavík, 25. maí 2021  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum