Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2021 Innviðaráðuneytið

4,2 milljarðar til sveitarfélaga til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts

Framlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts munu rúmlega 4,2 milljörðum kr. á árinu 2021. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þess efnis sbr. reglugerð nr. 80/2001 með síðari breytingum.

Um 60% af áætlun um úthlutun framlaga ársins komu til greiðslu mánuðina febrúar til júní eða samtals um 2.523 m.kr. Áætlað uppgjör framlaganna, sem nemur 1.682 m.kr., fer fram með þremur jöfnum greiðslum mánuðina júlí, ágúst og september, 560 m.kr. í hvert sinn.

Útreikningur framlaganna byggist á upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts í sveitarfélögum 31. desember 2020, sem gilda fyrir árið 2021. Við útreikning framlaganna er jafnframt tekið mið af álagningarprósentum fasteignaskatts í sveitarfélögum á árinu 2021.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum