Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2021 Forsætisráðuneytið

Umboðsmaður barna afhendir forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir 2020

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Salvör Nordal, umboðsmaður barna, funduðu í Stjórnarráðinu í dag þar sem umboðsmaður barna kynnti forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir árið 2020.

Í skýrslunni er m.a. fjallað um skýrslu embættisins til barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna, þar sem settar eru fram ábendingar um aðgerðir sem stjórnvöld verða að grípa til og sem miða að áframhaldandi innleiðingu Barnasáttmálans. Í ársskýrslunni er einnig fjallað um tímabundinn flutning embættisins til Egilsstaða í mars mánuði á síðasta ári, en markmið þess verkefnis var að styrkja tengsl við börn og þá aðila sem vinna að málefnum barna um allt land. 

Einnig er fjallað um nýja vefsíðu embættisins sem fór í loftið á síðasta ári, en vefurinn vann til verðlauna sem besti samfélagsvefurinn. Hin nýja vefsíða tekur sérstakt mið af þörfum barna fyrir upplýsingar við hæfi og ráðgjöf um eigin réttindi í samræmi við áherslu embættisins á þátttöku og valdeflingu barna. Ársskýrslan kemur út eingöngu á rafrænu formi eins og í fyrra.

Ársskýrsla umboðsmanns barna 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum