Hoppa yfir valmynd
9. júlí 2021 Utanríkisráðuneytið

Spurningakeppni í Mangochi

Keppendur og skipuleggjendur voru hinir ánægðustu með framtakið. - mynd

Bráðskemmtilegri spurningakeppni tólf skóla í Mangochi-héraði, samstarfshéraðs Íslands í Malaví, lauk á dögunum þar sem nemendur í efri bekkjum grunnskóla fengu að spreyta sig. Þessi árlega keppni er skipulögð af menntaskrifstofu Mangochi-héraðs sem nýtur stuðnings og fjármagns frá Íslandi í verkefnastoðinni „Mangochi Based Service Programme II“. Mphatso Sokosa, verkefnisfulltrúi sendiráðs Íslands í Lilongwe, var heiðursgestur á lokaviðburði keppninnar.

Skólarnir sem kepptu til úrslita voru frá sveitahéruðunum Koche, Chimwala, St. Joseph og Chimbende en áður höfðu farið fram undankeppnir þar sem tólf skólar, sem allir njóta stuðnings frá Íslandi, kepptu sín á milli.

Makawa-grunnskólinn frá Koche stóð á endanum uppi sem sigurvegari en Changamire-grunnskólinn í Chimwala varð í öðru sæti. Alls stunda tæplega 30 þúsund nemendur nám í grunnskólunum tólf eða  rúmlega tvöfalt fleiri en í öllum grunnskólum Reykjavíkur.  

Skipulag keppninnar var hið glæsilegasta og lögðu fjölmargir hönd á plóg. Fjallað var um spurningakeppnina í fjölmiðlum á svæðinu t.d. á héraðsútvarpsstöðinni Radio Lilanguka auk þess sem ríkissjónvarp Malaví, MBC TV, gerði spurningakeppninni góð skil.  

  • Grunnskólinn í Makawa. - mynd
  • Spurningakeppni í Mangochi - mynd úr myndasafni númer 2
  • Spurningakeppni í Mangochi - mynd úr myndasafni númer 3
  • Spurningakeppni í Mangochi - mynd úr myndasafni númer 4

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 4 Menntun fyrir alla

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum