Hoppa yfir valmynd
12. júlí 2021 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Ferðatryggingasjóður: Umsókn um aðild til 1. ágúst

Lög um Ferðatryggingasjóð hafa nú tekið gildi og reglugerð um sjóðinn hefur jafnframt verið gefin út.

Með Ferðatryggingasjóði er komið á fót nýju tryggingakerfi fyrir pakkaferðir í stað eldra tryggingakerfis sem sætt hefur mikilli gagnrýni undanfarin ár. Sjóðurinn er sameiginlegur tryggingasjóður ferðaskrifstofa sem tryggir endurgreiðslur til ferðamanna við ógjaldfærni eða gjaldþrot seljenda pakkaferða. Ferðatryggingasjóður er sjálfseignarstofnun sem tryggir réttindi neytenda með betri hætti en verið hefur og felur jafnframt í sér umtalsvert hagræði fyrir ferðaskrifstofur hér á landi.

Stjórn sjóðsins hefur þegar verið skipuð. Í henni sitja Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður, formaður, skipuð án tilnefningar, Jóhann Tómas Sigurðsson, lögmaður, fulltrúi Neytendasamtakanna, og Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri, fulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar.

Stjórnin hefur falið Ferðamálastofu að stíga fyrstu skref varðandi starfsemi sjóðsins, s.s. að vinna að umsýsluverkefnum sjóðsins.

Skilafrestur gagna þeirra sem sækja um aðild að sjóðnum er til 1. ágúst og gjalddagi stofngjalds 1. september nk.

Gjalddagi iðgjalds og frestur til að leggja fram tryggingu er til 1. desember nk. Ferðamálastofa veitir allar nánari upplýsingar um starfsemi sjóðsins.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum