Hoppa yfir valmynd
10. ágúst 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum til Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti

Sigríður Tómasdóttir í Brattholti - mynd

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti sem afhent verður í tilefni af Degi íslenskrar náttúru þann 16. september.

Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti verður veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar. Sigríður Tómasdóttir, fæddist 24. febrúar 1871 í Brattholti. Sigríður var baráttukona og náttúruverndarsinni sem lagði mikið á sig í baráttu gegn virkjun Gullfoss. Hún var því brautryðjandi á sviði náttúruverndarmála hér á landi og hefur æ síðan verið íslenskum náttúruverndarsinnum fyrirmynd.

Tilnefningar með rökstuðningi sendist umhverfis- og auðlindaráðuneytinu á netfangið [email protected]. í síðasta lagi 6. september 2021.

Nánari upplýsingar um Dag íslenskrar náttúru

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum