Hoppa yfir valmynd
13. ágúst 2021

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga 2021

Sendiráðið í Brussel mun taka á móti kjósendum sem óska að greiða atkvæði utan kjörfundar fram til kjördags 25. september nk.

Sendiráðið er til húsa að rue Archimède 17, nálægt Schuman hringtorginu í Evrópuhverfinu.

Hægt verður að greiða atkvæði án þess að gera boð á undan sér á þessum tímum: 

  • Í ágúst á miðvikudögum og föstudögum milli kl. 10:00 og 16:00
  • Í september á mánudögum eftir kl. 14:00, á miðvikudögum milli kl. 9:00 og 12:00 og á föstudögum milli kl. 10:00 og 16:00.

Á þessum dögum verður hægt að taka á móti kjósendum í fundarsal á jarðhæð.

Á öllum öðrum tímum er vegna Covid-ráðstafana nauðsynlegt að bóka tíma fyrirfram til að greiða atkvæði með því að senda tölvupóst á netfangið: [email protected].

Kjósendur verða beðnir um að framvísa íslensku persónuskilríki með mynd.

Vakin er athygli á að kjósendur á erlendri grundu bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila. Senda skal atkvæði til sýslumanns eða kjörstjórnar í því umdæmi þar sem kjósandi telur sig vera á kjörskrá. Kjósendur eru, í sóttvarnarskyni, beðnir um að hafa eftirtaldar ráðstafanir í huga:

  • Mælst er til að kjósandi hafi meðferðis eigin skriffæri.
  • Ef fleiri eru í för með kjósanda er til þess mælst að þeir bíði utandyra (gildir einnig á ræðisskrifstofum).
  • Óskað er eftir að kjósendur sótthreinsi hendur við komu í sendiráðið og virði fjarlægðarmörk.

Auk sendiráðsins verður hægt að greiða atkvæði á ræðisskrifstofum Íslands í Belgíu, Hollandi og Lúxemborg á nánar tilgreindum tímum eða samkvæmt samkomulagi.

Góðfúslega veitið því athygli að framangreindar ráðstafanir vegna Covid-19 faraldursins gilda einnig þegar kosið er hjá ræðismönnum. Nánari upplýsingar um hvenær tekið verður við kjósendum munu fylgja síðar eftir því sem við á:

Belgía / Embourg
Mr. Vincent V.J. Bovy - Honorary Consul
Voie de Liège 140b
BE-4053 Embourg
Netfang: [email protected]
Sími: (4) 367 2819
Farsími: (0) 475 904 410

Lúxemborg / Bertrange
Mrs. Josiane Eippers - Honorary Consul General
Netfang: [email protected]
50, avenue Gaston Diderich, L-1420 Luxembourg
Sími: 6212 32000
Miðvikudaginn 15. september milli 12:15 og 14:00 og fimmtudaginn 16 september milli 12:30 og 14:30

Holland / Amsterdam
Mr. Wouter Johann Pieter Jongepier - Honorary Consul
Gustav Mahlerplein 2
P.O. Box 75510, NL-1070 AM Amsterdam
NL-1082 MA Amsterdam
Netfang: [email protected]

Gerco van Eck – Honorary Consul
Loyens & Loeff, Blaak 31
P.O. Box 2888, 3000 CW Rotterdam,
NL-3011 GA Rotterdam
Netfang: [email protected]
Sími: (10) 224 6564 / 6703

Gerard van Klaveren – Honorary Consul
Eineflecht 4
NL-9244 EN Beetsterzwaag
Netfang: [email protected]
Sími: 6 534 011 24

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum