Hoppa yfir valmynd
1. september 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Uppfærð landsskýrsla um innleiðingu Árósasamningsins í samráðsgátt

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að uppfærðri landsskýrslu um stöðu innleiðingar á Árósasamningnum. Skýrslan verður þriðja skýrsla Íslands um innleiðingu samningsins hér á landi.

Ísland fullgilti í október 2011 Árósasamninginn um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Þar með varð Ísland fullgildur aðili að samningnum og því starfi sem tengist honum. Auk aðildarríkjaráðstefnu á þriggja ára fresti og ríkjafunda sem haldnir eru árlega eru á vettvangi samningsins reknir vinnuhópar um helstu málefni samningsins, þ.e. aðgang að upplýsingum, þátttökuréttindi almennings og aðgang að réttlátri málsmeðferð.

Umhverfis- og auðlindaráðherra gaf út á árinu 2018 aðgerðaáætlun með tilteknum aðgerðum um frekari innleiðingu Árósasamningsins. Vinna við einstakar aðgerðir eru komnar vel á veg og er mörgum þeirra lokið, auk þess sem ýmsar aðgerðir fela í sér viðvarandi verkefni. Umbætur hafa t.d. verið gerðar á vefsíðu ráðuneytisins og áform eru um að ræða á næstunni við stofnanir um mögulegar umbætur á vefsíðum þeirra. Lög nr. 23/2007 hafa verið felld inn í ákvæði upplýsingalaga, nr. 140/2012 og ýmis fræðsla um samninginn hefur átt sér stað, m.a. málþing um Árósamsamninginn. Lög um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 hafa verið endurskoðuð og felld saman við lög um umhverfismat áætlana, nr. 105/2006, sbr. ný lög nr. 111/2021  um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana. Einnig má nefna að niðurstöður rannsóknar sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Skipulagsstofnun voru birtar í júní 2021, en hún fólst í kortlagningu á afstöðu almennings og mati fagaðila á samráði í skipulags- og framkvæmdamálum. Ráðuneytið hyggst birta á þessu ári nánari skýrslu um stöðu einstakra aðgerða í aðgerðaáætluninni.

Aðildarríkin hafa skilað aðildarríkjaskýrslu til skrifstofu samningsins á þriggja ára fresti þar sem farið er yfir stöðu innleiðingar ákvæða samningsins í viðkomandi ríki. Á þessu ári eiga aðildarríkin að skila skýrslu að nýju og verður hún til umræðu á næsta aðildarríkjaráðstefnu samningsins.

Mikilvægt er að öll sjónarmið komi fram, bæði sjónarmið stjórnvalda, almennings og félagasamtaka sem nýta sér þann rétt sem aðild að samningnum veitir.

Ráðuneytið hvetur alla þá sem áhuga hafa til að koma með ábendingar um drög að skýrslunni og senda á netfangið [email protected].  Tekið verður við ábendingum og athugasemdum til og með 27. september nk.

Nánari upplýsingar veitir Steinunn Fjóla Sigurðardóttir, [email protected].

Drög að uppfærðri stöðuskýrslu um innleiðingu Ársósasamningsins

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum