Hoppa yfir valmynd
3. september 2021 Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

Skrifað undir samning um kaup á 3 björgunarskipum

Frá undirritun samningsins í dag. - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Þór Þorsteinsson, formaður Landsbjargar, skrifuðu í dag undir samning um kaup á þremur nýjum björgunarskipum. Undirritunin fór fram við setningu landsþings Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Hörpu í dag.

Gert er ráð fyrir því að fyrsta skipið komi til Íslands um mitt næsta ár, annað í lok ársins  og það þriðja í september 2023. Það er finnska fyrirtækið KewaTec sem mun smíða skipin en fulltrúi þess undirritaði samninginn fyrir hönd fyrirtækisins í dag. Fyrr í ár var greint frá því að ríkið myndi veita Landsbjörgu allt að 450 milljóna króna framlag til kaupa á þremur björgunarskipum á árunum 2021-2023. Skrifað var undir samkomulag þess efnis í janúar en þar að auki var undirrituð viljayfirlýsing um kaup á sjö skipum til viðbótar á næstu tíu árum.

Samkomulagið og viljayfirlýsingin byggðust á tillögum starfshóps um eflingu björgunarskipa Landsbjargar sem forsætisráðherra skipaði í desember 2019. Starfshópurinn var skipaður í kjölfar þess að Alþingi vísaði þingsályktunartillögu um eflingu björgunarskipaflota Landsbjargar til ríkisstjórnarinnar í maí 2019. Var forsætisráðherra falið að taka málið til skoðunar og tryggja verkefninu framgang og fjármagn.

Kaupin eru liður í því að endurnýja skipakost Landsbjargar sem er kominn til ára sinna. Markmiðið er að leggja grunn að enn öflugra starfi Landsbjargar á komandi árum, efla útkallsgetu björgunarsveita og tryggja öryggi skipa og áhafna þeirra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum