Hoppa yfir valmynd
24. september 2021 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra skipar aðgerðahóp um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað aðgerðahóp stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði.

Hópurinn er skipaður vegna skýrslu sem starfshópur um endurmat kvennastarfa skilaði af sér. Verkefni hins nýja aðgerðahóps er að leggja fram tillögur að aðgerðum til að útrýma launamun sem skýrist af kynskiptum vinnumarkaði.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra: 

„Ein helsta ástæða kynbundins launamunar er kynskiptur vinnumarkaður og þess vegna er brýnt að greina þennan vanda og skoða hvað það er sem einkennir vanmat á hefðbundnum kvennastörfum.”

Í nýlegri launarannsókn sem Hagstofa Íslands vann fyrir forsætisráðuneytið kemur fram að launamunur kynjanna fer minnkandi hvort sem horft er til leiðrétts eða óleiðrétts launamunar en sá munur sem enn er til staðar skýrist af kynskiptum vinnumarkaði.

Bryndís Hlöðversdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis, er formaður hópsins. Þar eiga einnig sæti fulltrúar frá félagsmálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, ASÍ, BSRB, BHM, Kennarasambandi Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum