Hoppa yfir valmynd
24. september 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðistæknilausnir til að efla þjónustu í heimahúsi

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra. - myndMynd: Heilbrigðisráðuneyti
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita 100 milljónir króna til að styðja við notkun heilbrigðistæknilausna í þjónustu við fólk í heimahúsi. Markmiðið er að veita meiri og betri þjónustu heim og auka öryggi og lífsgæði fólks. Þá gefa tæknilausnirnar færi á betri nýtingu mönnunar og geta jafnframt dregið úr innlögnum á sjúkrahús. Fjárveiting skiptist þannig að 67 milljónum verður veitt til Heimaþjónustu Reykjavíkur og 33 milljónum króna til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum