Hoppa yfir valmynd
29. september 2021 Innviðaráðuneytið

Framlög vegna þjónustu við fatlað fólk áætluð 19,2 milljarðar árið 2022

Áætluð framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2022 nema alls 19,2 milljörðum kr. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra samþykkti nýlega tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um áætlaða úthlutun almennra framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk á næsta ári.

Við útreikning framlaganna skiptast 88% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni stuðningsþarfar, 10,75% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni eigin útsvars og 1,25% hlutfallslega miðað við fjarlægð innan þjónustusvæða og fjölda sveitarfélaga á þjónustusvæðum.

Jafnframt fer fram leiðrétting á framlögum ársins 2020 á grundvelli endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2020 og kemur leiðréttingin til viðbótar eða frádráttar áætluðum almennum framlögum ársins 2021. Leiðréttingin nemur 70 m.kr. og nema áætluð framlög næsta árs því 19.270 m.kr.

Framlögin eru greidd mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,99% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar og tekna sjóðsins af 0,235% af innheimtum skatttekjum ríkisins.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í maí 2022.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum