Hoppa yfir valmynd
25. október 2021 Dómsmálaráðuneytið

Hjálparlið almannavarna – nýr samningur

Undirritun RLS - myndDMR
Ríkislögreglustjóri, formaður Rauða krossins á Íslandi og formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa undirritað endurnýjað „Samkomulag um hjálparlið almannavarna“.

Samkomulagið er gert á grundvelli almannavarnalaga og tryggir sem fyrr aðkomu sjálfboðaliða Rauða krossins og Slysavarnafélagsins Landsbjargar að almannavarnaviðbragði landsins. Að undirritun lokinni staðfesti dómsmálaráðherra samkomulagið.
Við sama tækifæri voru undirritaðir sérsamningar ríkislögreglustjóra við félögin bæði. Samkvæmt samningnum gerir Ríkislögreglustjóri sérstakt samkomulag við Rauða krossinn á Íslandi um hlutverk og verkefni Rauða krossins í heildarskipulagi vegna almannavarna á hættu- og neyðartímum og þjálfun og fræðslu vegna þeirra verkefna.

Að sama skapi er gert sérstakt samkomulag við Slysavarnafélagið Landsbjörg um hlutverk og verkefni björgunarsveita og slysavarnadeilda, landsstjórnar björgunarsveita og svæðisstjórna í almannavarnaaðgerðum á hættu- og neyðartímum sem og þjálfun og fræðslu vegna þeirra verkefna.

Framlag Rauða krossins á Íslandi og Slysavarnafélagsins Landsbjargar er, eins og dæmin sanna, almannavörnum og samfélaginu öllu ómetanlegur stuðningur.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum