Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2021 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogaumræðum með Hillary Clinton

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogaumræðum á ráðstefnunni Global Challenges Summit sem haldin er á vegum Hillary Clinton og Swansea-háskóla.

Global Challenges Summit er alþjóðlegur rafrænn viðburður þar sem fjallað er um helstu áskoranir við uppbygginguna sem framundan er vegna COVID-19. Auk forsætisráðherra og Clinton tóku þau Ellen Johnson Sirleaf, fyrrverandi forseti Líberíu, og Alexander Stubb, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands, þátt í umræðunum.

Í umræðum leiðtoganna ræddi forsætisráðherra meðal annars um áherslu íslenskra stjórnvalda á jafnréttismál í víðum skilningi og velsældarhagkerfið þar sem frekar er horft til velsældar íbúa en hagvaxtar við mat á árangri samfélaga. Slík nálgun væri  sérstaklega mikilvægur þáttur í uppbyggingunni vegna COVID-19.  

Loftslagsmál og COP26 voru líka til umræðu. Forsætisráðherra lagði áherslu á að ríki heims þurfi að ganga lengra í að draga úr losun ef markmið Parísarsamkomulagsins eiga að nást. Þá ræddi hún einnig um uppfærðar skuldbindingar Íslands og mikilvægi þess að allt samfélagið komi að því að smíða lausnir í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum