Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Frestur félagasamtaka til að sækja um styrki til verkefna á sviði heilbrigðismála framlengdur

Ákveðið hefur verið að framlengja til 19. nóvember frest félagasamtaka til að sækja um styrki til verkefna á sviði heilbrigðismála. Styrkirnir eru veittir af safnliðum fjárlaga ár hvert, til verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Styrkir eru ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki af safnliðum fjárlaga frá íslenskum félagasamtökum vegna verkefna á sviði heilbrigðismála.

Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið.

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknir á rafrænum eyðublöðum er að finna á umsóknarvef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is)   

Úthlutun fer fram einu sinni á ári og eru veittir styrkir til verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Styrkir eru ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn.

Nánari upplýsingar um styrkina og skilyrði fyrir styrkveitingum koma fram í reglum um úthlutun þeirra.

Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 föstudaginn 19. nóvember 2021.

Úthlutað verður eigi síðar en 1. febrúar 2022.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti lýkur verður ekki tekin til umfjöllunar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum