Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2021 Matvælaráðuneytið

Innanlandsvog 2022

Atvinnuvega – og nýsköpunarráðuneytið hefur gefið út innanlandsvog í samræmi við 5. gr. reglugerðar um stuðning við sauðfjárrækt nr. 1253/2019. Hlutverk hennar er að skilgreina þarfir og eftirspurn innanlandsmarkaðar eftir kindakjöti, m.a. með það að markmiði að álagsgreiðslur vegna gæðastýringar skiptist á þann hluta heildarframleiðslunnar sem ætluð er fyrir innanlandsmarkað.

Til grundvallar útreikningum á innanlandsvog liggja upplýsingar um sölu kindakjöts eftir skrokkhlutum síðastliðna 24 mánuði og spá um líklega söluþróun. nnanlandsvog er birt í tvennu lagi, þ.e. annars vegar fyrir dilkakjöt og hins vegar fyrir kjöt af fullorðnu fé. Á grundvelli þessa líkans liggur áætlun framleiðsluársins 2021 – 2022 nú fyrir.

Samhliða innanlandsvoginni hefur atvinnuvega – og nýsköpunarráðuneytið gert spá um framleiðslu sem byggir á fjölda vetrarfóðraðra kinda og framleiðslu pr vetrarfóðraða kind sl. 3 ár. Með því er einnig hægt að áætla um útflutningsþörf á komandi framleiðsluári.

Dilkakjöt

Innanlandsvog fyrir dilkakjöt framleiðsluárið 2021 – 2022 er 6.954 tonn. Það er sú framleiðsla sem þarf til að mæta eftirspurn eftir heilum skrokkum og skrokkhlutum, þ.e. frampörtum, hryggjum, lærum og slögum. Það er eftirspurn eftir hryggjum sem ræður magninu en til þess að fullnægja henni er umframframleiðsla/útflutningsþörf á frampörtum, lærum og slögum, alls 1.257 tonn.

Áætluð heildarframleiðsla á dilkakjöti er 7.926 tonn og miðað við hana er útflutningsþörf alls 2.230 tonn.

Kjöt af fullorðnu

Innanlandsvog fyrir kjöt af fullorðnu fé framleiðsluárið 2021 – 2022 er 824 tonn. Það er sú framleiðsla sem þarf til að mæta innanlandseftirspurn eftir heilum skrokkum og skrokkhlutum. Eftirspurn eftir frampörtum ræður framleiðsluþörfinni fyrir innanlandsmarkað. Spá um heildarframleiðslu er 1.280 tonn og heildarútflutningsþörf 514 tonn.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum