Hoppa yfir valmynd
9. desember 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Svandís heimsótti Matís og Hafrannsóknastofnun

Svandís, Þorsteinn og Ólafur Pétur Sigurðsson í Árna Friðrikssyni, rannsóknarskipi Hafró.  - mynd

Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, heimsótti Hafrannsóknastofnun og Matís í vikunni, en bæði heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.  


Í heimsókn sinni í nýlegt húsnæði Hafró í Hafnarfirði hitti ráðherra starfsfólk og Þorstein Sigurðsson, forstjóra stofnunarinnar. Þar fékk hún fræðslu um starfsemina, fundaði með framkvæmdastjórn og fór yfir áskoranir stofnunarinnar til næstu ára. Ráðherra fór einnig um borð í rannsóknarskipið Árna Friðriksson og fékk stutta kynningu, en nú er unnið að því að ljúka samningum um nýtt hafrannsóknarskip svo hægt sé að hefja smíði þess. 


Í heimsókn sinni í Matís fékk ráðherra einnig kynningu á starfseminni og þeirri aðstöðu sem Matís býður upp á. Svandís hitti starfsfólk og Odd Má Gunnarsson, forstjóra og fræddist um áskoranir stofnunarinnar, en hlutverk Matís er að styðja við verðmætasköpun, lýðheilsu og matvælaöryggi. Fyrir vikið var mikið rætt um sóknarfærin í landbúnaði, sjávarútvegi og umhverfismálum. 

Ráðherra mun halda áfram að heimsækja stofnanir í vikunni og mun meðal annars hitta fulltrúa Fiskistofu, Landgræðslunnar og heimsækja Matvælastofnun á Selfossi á föstudag. 

 

Ráðherra og Oddur Már forstjóri Matís ásamt starfsfólki. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
14. Líf í vatni
9. Nýsköpun og uppbygging

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum